Stefán Máni
Stefán Máni Sigþórsson (f. 3. júní 1970) er íslenskur rithöfundur. Hann hefur gefið út skáldsögur frá árinu 1996. Sögurnar eru á jaðri raunsæis, oft sagðar út frá sjónarhorni verkamanns og fjalla um skuggahliðar mannlegrar tilveru. Fyrsta skáldsaga hans, Dyrnar á Svörtufjöllum, kom út árið 1996 á eigin kostnað höfundar og vakti þó nokkra athygli. Glæpasagan Svartur á leik var tilnefnd til Glerlykilsins árið 2005. Árið 2012 var frumsýnd kvikmyndin Svartur á leik sem er byggð á samnefndri bók í leikstjórn[1] Óskars Þórs Axelssonar. Stefán Máni hefur í þrígang hlotið íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann, árið 2007 fyrir Skipið[2], 2013 fyrir Húsið[3] og 2014 fyrir Grimmd.[4] Bækurnar hafa einnig verið valdar sem framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins.
Verk
breytaÁr | Titill | Útgefandi | Flokkur | Athugasemmdir og viðurkenningar |
---|---|---|---|---|
1996 | Dyrnar á Svörtufjöllum | Höfundur | Skáldsögur | |
1999 | Myrkravél | Mál og menning | Skáldsögur | |
2001 | Hótel Kalifornía | Forlagið | Skáldsögur | |
2002 | Ísrael: saga af manni | Mál og menning | Skáldsögur | |
2004 | Svartur á leik | Mál og menning | Skáldsögur | Tilnefnd til Glerlykilsins 2005 |
2005 | Túristi | Mál og menning | Skáldsögur | |
2006 | Skipið | JPV-útgáfa | Skáldsögur | Hlaut Blóðdropann 2007 |
2008 | Ódáðahraun | JPV-útgáfa | Skáldsögur | Tilnefnd til Blóðdropans 2009 |
2009 | Hyldýpi | Mál og menning | Skáldsögur | Tilnefnd til Blóðdropans 2010 |
2011 | Feigð | JPV-útgáfa | Skáldsögur | Tilnefnd til Blóðdropans 2012 |
2012 | Húsið | JPV-útgáfa | Skáldsögur | Hlaut Blóðdropann 2013 |
2013 | Úlfshjarta | Mál og menning | Unglingabækur | |
2013 | Grimmd | JPV-útgáfa | Skáldsögur | Hlaut Blóðdropann 2014 |
2014 | Litlu dauðarnir | Sögur | Skáldsögur | |
2015 | Nóttin Langa | Sögur | Unglingabækur | |
2015 | Nautið | Sögur | Skáldsögur | Tilnefnd til Blóðdropans 2016 |
2016 | Hin æruverðuga og ættgöfuga hefðarprinsessa fröken Lovísa Perlufesti Blómsdóttir – Daprasta litla stúlka í öllum heiminum | Sögur | Barnabækur | |
2016 | Svarti Galdur | Sögur | Skáldsögur | |
2017 | Skuggarnir | Sögur | Skáldsögur | Tilnefnd til Blóðdropans 2018 |
2018 | Náttfiðrildi | Menntamálastofnun | Unglingabækur | |
2018 | Krýsuvík | Sögur | Skáldsögur | Tilnefnd til Blóðdropans 2019 |
2019 | Aðventa | Sögur | Skáldsögur | |
2020 | Mörgæs með brostið hjarta – ástarsaga | Sögur | Skáldsögur | |
2020 | Dauðabókin | Sögur | Skáldsögur | |
2021 | Horfnar | Sögur | Skáldsögur | |
2022 | Hungur | Sögur | Skáldsögur | Tilnefnd til Blóðdropans 2022 |
2023 | Hrafnskló | Sögur | Skáldsögur | |
2023 | Borg hinna dauðu | Sögur | Skáldsögur | |
2024 | Dauðinn einn var vitni | Sögur | Skáldsögur |
Hörður Grímson
breytaStefán Máni kynnti Hörð Grímsson fyrir lesendum sínum árið 2009 í bókinni Hyldýpi. Bækurnar um Hörð hafa ekki komið út í beinni tímalínu en sögurnar eru sjálfstæðar, því er hægt að lesa bækurnar í hvaða röð sem er.
Sögurnar í þeirri röð sem þær gerast:
- Svartigaldur
- Krýsuvík
- Aðventa
- Horfnar
- Dauðabókin
- Hyldýpi
- Húsið
- Feigð
- Grimmd
- Hungur
- Borg hinna dauðu
Önnur útgáfa
breytaTenglar
breyta- Um Stefán Mána á Bókmenntavef Borgarbókasafnsins
- Um Stefán Mána á Bókmenntavefnum
- Blóðdropinn, tilnefningar Geymt 31 júlí 2019 í Wayback Machine
Tilvísanir
breyta- ↑ „Hostel-framleiðandi vinnur að íslenskri glæpamynd - Vísir“. visir.is. Sótt 14. mars 2019.
- ↑ „Stefán Máni hlaut Blóðdropann“. www.mbl.is. Sótt 10. mars 2019.
- ↑ „Stefán Máni fær Blóðdropann - Húsið framlag Íslands til Glerlykilsins - Vísir“. visir.is. Sótt 10. mars 2019.
- ↑ „Stefán Máni fær Blóðdropann í 3ja sinn!“. RÚV (enska). 7. júlí 2014. Sótt 10. mars 2019.
- ↑ „At og aðrar sögur“. Forlagið bókabúð. 19. september 2008. Sótt 10. nóvember 2022.
- ↑ „Tímarit Máls og menningar - 2. tölublað (05.06.2001) - Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 10. nóvember 2022.