Skjaldarmerki Austur-Þýskalands
Skjaldarmerki Austur-Þýskalands (1950–1990)
Skjaldarmerki Þýska alþýðulýðveldisins var hringlaga, innri rauður flötur og á honum gulur hamar og sirkill og þar í kring vöndur af rúgaxi. Hamarinn táknaði verkamannastéttina, sirkillinn menntamenn og rúgurinn bændurna.
Í fyrsta skjaldarmerkinu voru einungis hamarinn og rúgurinn sem tákn Þýska alþýðulýðveldisins sem „ríki verkamanna og bænda“ (Arbeiter- und Bauernstaat).
Skjaldarmerkið var lögleitt 26. september 1955 og gert að hluta af Austur-þýska fánanum 1. október 1959.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Skjaldarmerki Austur-Þýskalands.