Skiptingar Póllands
Skiptingar Póllands vísa til skiptinga landa Pólsk-litháíska samveldisins milli Rússlands, Prússlands og Austurríkis 5. ágúst 1772, 23. janúar 1793 og 24. október 1795. Eftir þessar skiptingar var samveldið ekki lengur til á landakortum.
Í Napóleonsstyrjöldunum bjó Napoleon Bonaparte til pólskt ríki, Hertogadæmið Varsjá, og hin ríkin þrjú sem höfðu skipt samveldinu milli sín gáfu innlimuðu héruðunum eftir nokkra sjálfstjórn. Þannig urðu til:
Fjórða skipting Póllands getur átt við eitt af eftirfarandi:
- Skiptingu hertogadæmisins Varsjár eftir Vínarþingið 1815.
- Innlimun konungsríkisins Póllands í Rússland 1832 og Krakárlýðveldisins í Austurríki 1846.
- Skiptingu Póllands milli Þýskalands og Sovétríkjanna samkvæmt Mólotov-Ribbentrop-samkomulaginu 1939.