Skíðadeild KR
Skíðadeild KR var stofnuð 1934. Við deildina starfa margir skíðaþjálfarar og boðið er upp á æfingar á skíðum, gönguskíðum, snjóbretti og skautum.
Skíðadeild KR | |
---|---|
Stofnun | 1934 |
Höfuðstöðvar | KR-heimilið, Skálafell og Skautahöllin |
Lykilmenn | Anna Laufey Sigurðardóttir (formaður) |
Móðurfélag | KR |
Vefsíða | https://kr.is/skidi/ |
Virkar deildir Knattspyrnufélags Reykjavíkur | ||
---|---|---|
Knattspyrna |
Körfubolti |
Handbolti |
Badminton |
Borðtennis |
Glíma |
Keila |
Skíði |
Sund |
Saga
breytaDeildin var stofnuð árið 1934, tveimur árum eftir stofnunina var byggður skíðaskáli í Skálafelli. Ekki var byggður annar skáli fyrir starfsemi félagsins fyrr en eftir seinna stríð, en sá var staðsettur í Hveradölum. Skálarnir brunnu hinsvegar báðir. Skálinn í Hveradölum fórst í bruna árið 1953 en skálinn í Skálafelli fórst einnig í bruna, tveimur árum síðar, eða árið 1955. Strax eftir brunann í skálafelli var tekin ákvörðun um að endurbyggja skálann og hafa hann glæsilegari en áður. Þann 1. mars árið 1959 var nýr skáli vígður.
Skíðadeildin á tvo skála í skálafelli í dag og einnig er þar rekinn skíðaskóli, en þar er hægt að æfa skíði, gönguskíði og snjóbretti auk þess sem hægt er að æfa skauta í Skautahöllinni í Laugardalnum
Formenn Skíðadeildar KR
breyta- 1934-1935 Björn Þórðarson
- 1935-1942 Stefán Gíslason
- 1942-1948 Georg Lúðvíksson
- 1948-1949 Haraldur Björnsson
- 1949-1950 Þórir Jónsson
- 1950-1951 Hermann Guðjónsson
- 1951-1961 Þórir Jónsson
- 1961-1964 Karólína Guðmundsdóttir
- 1964-1965 Hinrik Hermannsson
- 1965-1968 Valur Jóhannsson
- 1968-1976 Einar Þorkelsson
- 1976-1978 Steingrímur Gröndal
- 1978-1979 Viggó Benediktsson
- 1979-1988 Valur Jóhannsson
- 1988-1991 Ásgeir Eiríksson
- 1991-1994 Guðjón Ólafsson
- 1994-1995 Gunnar Örn Harðarson
- 1995-1996 Guðjón Mathiesen
- 1996-2000 Heimir Sigurðsson
- 2000-2002 Guðrún Gunnarsdóttir
- 2002-2004 Halldór Hreinsson
- 2004-2006 Jóhannes Þórðarson
- 2006-2007 Ingimar Sigurðsson
- 2007- Anna Laufey Sigurðardóttir
Fram til ársin 2003 var starfsár deildarinnar miðað við 1. maí til 31. apríl en síðan þá hefur almanksárið gilt