Sitkaelri
Sitkaelri eða sitkaölur[1] (fræðiheiti: Alnus viridis ssp. sinuata) er margstofna runni af birkiætt sem vex í vesturhluta Norður-Ameríku: Allt frá Alaska til fjalla í Kaliforníu.
Sitkaölur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Þrínefni | ||||||||||||||||
Alnus viridis ssp. sinuata (Regel) Á.Löve & D.Löve | ||||||||||||||||
Heimsútbreiðsla Alnus viridis
| ||||||||||||||||
Útbreiðsla Alnus viridis ssp sinuata í N-Ameríku
|
Það er ljóselsk tegund og nær frá 3 til 10 metra að hæð og getur vaxið frá sjávarmáli í allt að 2700 metra hæð. Laufblöð verða allt að 9 sm löng og karlreklar 10-12 sm. Sitkaelri gerir ekki miklar kröfur til jarðvegs en þrífst best þar sem jarðraki er til staðar. Sitkaelri verður sjaldan eldra en 50 ára. [2]
Sitkaelri er notað í landgræðslu í Bandaríkjunum en rætur þess og sambýli þeirra við niturbindandi rótargerla hjálpa til við það. [3] Tilraunir hafa verið gert með það á Íslandi.[4] Sitkaölur frá skógrækt hefur sáð sér á Stjórnarsandi við Kirkjubæjarklaustur, Skógey nærri Hornafirði, Hveragerði, Reyðafirði og í Elliðaárdal.[1]
Sitkaelri er náskylt kjarrelri og grænelri sem vex í Evrópu og Asíu.[5]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Hörður Kristinsson (2008). Íslenskt plöntutal, blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. 58 bls.
- ↑ Sitkaelri[óvirkur tengill] Lystigarður Akureyrar. Skoðað 27. maí, 2016
- ↑ Sitka alder United States Department of Agriculture. Skoðað 27. maí, 2016.
- ↑ Elri gæti komið í stað lúpínu.Vísir. Skoðað 27. maí, 2016.
- ↑ Elritegundir Geymt 27 október 2017 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins. Skoðað 27. maí, 2016.