Silfurösp
Silfurösp, Populus alba,[1][2]er tegund af ösp. Hún vex frá Marokkó og Íberíuskaga um mið Evrópu (norður til Þýskalands og Póllands) til mið Asíu. Hún vex á rökum svæðum, oft við vötn eða ár, á svæðum með heitum sumrum og köldum til mildum vetrum.[3][4]
Silfurösp | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Fullvaxið tré
| ||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Populus alba L. | ||||||||||||||||||
Útbreiðslusvæði
| ||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||
|
Lýsing
breytaÞetta er meðalstórt tré, um 16 til 27 metra hátt (sjaldan meira), með stofn að 2 metrum í þvermál og breiða ávala krónu. Börkurinn er sléttur og græn-hvítur með einkennandi dökkum, demantslaga blettum á ungum trjám, og verður svartleitur og sprunginn á eldri trjám.[4][5]
Blendingar
breytaSilfurösp blandast við skylda tegund; blæösp Populus tremula; blendingurinn er þekktur sem gráösp (Populus × canescens), og er milli foreldranna í útliti. Flestar gráaspir í ræktun eru karlkyns, en kventré koma fyrir í náttúrinni og er stundum fjölgað.[4]
Ræktun og nytjar
breytaVegna saltþols hennar er henni oft plantað til að festa sandöldur við strendur.[6] Viðurinn er mjúkur, og er notaður í sellúlósa og í ódýr box. Meirihluti ræktaðra Silfuraspa í Norður-Evrópu eru kvenkyns.[5]
Keilulaga afbrigði frá Túrkestan, Populus alba 'Pyramidalis' (Bolle's Poplar; syn. Populus bolleana) er stundum notaður í almenningsgörðum.[4]
Ytri tenglar
breyta- Leaf and bark photos
- Tree identification Geymt 21 desember 2016 í Wayback Machine
- Images, diseases, galls and fungi on treetrees.com
- Populus alba - information, genetic conservation units and related resources. European Forest Genetic Resources Programme (EUFORGEN)
Tilvísanir
breyta- ↑ „Populus alba“. Germplasm Resources Information Network (GRIN). Agricultural Research Service (ARS), United States Department of Agriculture (USDA).
- ↑ Webb, C. J.; Sykes, W. R.; Garnock-Jones, P. J. 1988: Flora of New Zealand. Vol. IV. Naturalised Pteridophytes, Gymnosperms, Dicotyledons. 4. Christchurch, New Zealand, Botany Division, D.S.I.R.
- ↑ Flora Europaea: Populus alba
- ↑ 4,0 4,1 4,2 4,3 Rushforth, K. (1999). Trees of Britain and Europe. Collins ISBN 0-00-220013-9.
- ↑ 5,0 5,1 Flora of NW Europe: Populus alba Geymt 27 ágúst 2010 í Wayback Machine
- ↑ Vedel, H., & Lange, J. (1960). Trees and Bushes in Wood and Hedgerow. Metheun & Co. Ltd., London.