Sermersooq
Sermersooq (opinbert nafn á grænlensku: Kommuneqarfik Sermersooq) er sveitarfélag á suðvestur- og austurströnd Grænlands sem stofnað var 1. janúar 2009.[1]. Innan sveitarfélagsins er Nuuk, höfuðstaður Grænlands. Íbúafjöldi í janúar 2008 er 20.998[2] og er þetta fjölmennasta sveitarfélag landsins. Það nær yfir byggðarlögin (og samnefnd fyrrverandi sveitarfélög) Ammassalik og Ittoqqortoormiit á austurströndinni, og Ivittuut, Nuuk og Paamiut á suðausturströndinni.
Sveitarfélagið er 635.600 km²[3] að flatarmáli og er það næstvíðfeðmasta sveitarfélag í heimi eftir Avannaata. Að sunnan liggur það að sveitarfélaginu Kujalleq.
Í norðvestri liggur Sermersooq að sveitarfélaginu Qeqqata, og enn norðar að Qaasuitsup-sveitarfélaginu. Í norðri liggur það að Þjóðgarði Grænlands. Eina samgönguleiðin milli austur- og vesturhluta sveitarfélagsins er reglubundið flug flugfélagsins Air Greenland.
TilvísanirBreyta
- ↑ Landstingslov nr. 15 af 5. december 2008 om Grønlands inddeling i landsdele og kommunet | http://www.lovgivning.gl/gh.gl-love/dk/2008/ltl/ltl_nr_15-2008_kom_inddel/ltl_nr_15-2008_dk.htm Geymt 2009-06-29 í Wayback Machine
- ↑ „kanukoka.gl“. Afrit af upprunalegu geymt þann 24. september 2008. Sótt 7. febrúar 2009.
- ↑ [Kanukoka sameiginlegur vefur grænlensku sveitarfélagana http://www.kanukoka.gl/12630 Geymt 2008-09-24 í Wayback Machine]
ÍtarefniBreyta
- Vefur Sermersooq sveitarfélagsins Geymt 2008-12-25 í Wayback Machine