Seigja
Seigja er eiginleiki kvikefna, sem lýsir andófi (viðnámi) þeirra við ytri kröftum, sem verka á efnið. Oftast er notast við aflfræðilega seigju, táknaða með μ og hreyfifræðilega seigju, táknaða með ν.
Skilgreining
breytaÍsak Newton setti fram skilgreininguna að skerspenna τ er jöfn margfeldi aflfræðilegrar seigju, μ og hraðastiguls:
- ,
þar sem u er hraðinn í flæistefnu (hér x-stefnu, þar sem y-stefnan er þvert á flæðið). Vökvar, sem fylgja þessu sambandi, kallast línulegir eða njútónskir vökvar. Ólínulegir vökvar flygja þó ekki þessu sambandi.
SI-mælieining seigju er Pa·s = kg/(s·m).
Hreyfifræðileg seigja, ν er skilgreind sem hlutfall aflfræðilegrar seigju og eðlismassa, ρ vökvans:
- .
SI-mælieining hennar er m2/s. Eldri mælieingin er Stoke (St), en oftast var notað centistoke (cSt), sem jafngildir 10-6 m2/s eða mm2/s.