Samstöðin
Samstöðin er íslenskur fjölmiðill sem að var stofnaður var árið 2020. Samstöðin lýsir sér á þann hátt að hún sé samfélagssjónvarp og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Fréttir, fundir, myndbönd og hlaðvarpsættir eru gefnir út af fjölmiðlinum. Sósíalistaflokkur Íslands stendur á bak við fjölmiðilinn.
Í maí 2023 var brotist inn í skrifstofur Samstöðvarinnar og tækjabúnaði stolið ásamt því að skemmdarverk voru unnin á búnaði.[1]
Stjórn Samstöðvarinnar
breyta- Eyjólfur Guðmundsson, eðlisfræðingur og formaður stjórnar
- Guðmundur Hrafn Arngrímsson, landslagsarkitekt og formaður samtaka leigjenda
- Gunnar Smári Egilsson, stjórnmálamaður
- María Pétursdóttir, myndlistarkona
- Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, blaðamaður
- Björn Jónasson, útgefandi
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fræðikona
- Sanna Magdalena Mörtudóttir, mannfræðingur og borgarfulltrúi