Úllen dúllen doff - Úrval úr skemmtiþáttum útvarpsins
(Endurbeint frá SG 133)
Úllen dúllen doff - Úrval úr skemmtiþáttum útvarpsins er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1980.
Úllen dúllen doff - Úrval úr skemmtiþáttum útvarpsins | |
---|---|
SG - 133 | |
Flytjandi | Ýmsir |
Gefin út | 1980 |
Stefna | Gamanefni |
Útgefandi | SG-hljómplötur |
Stjórn | Þórir Steingrímsson |
Hljóðdæmi | |
Á henni flytja íslenskir skemmtikraftar frumsamið íslenskt skemmtiefni. Höfundar og flytjendur: Gísli Rúnar Jónsson, Edda Björgvinsdóttir, Randver Þorláksson og Jónas Jónasson. Gestaleikarar: Sigurður Sigurjónsson, Árni Tryggvason og Hanna María Karlsdóttir. Hljómsveitarstjórn og útsetningar: Vilhjálmur Guðjónsson. Framleiðandi: Jónas Jónasson. Leikstjóri: Gísli Rúnar Jónsson. Bixie hljómsveit Úllen dúllen doff: Haraldur Á. Haraldsson, Hlöðver Smári Haraldsson, Vilhjálmur Guðjónsson, Már Elísson og Sveinn Birgisson. Tæknivinna og magnaravarsla: Þórir Steingrímsson
Fyrir hlé
breyta- þáttur 7.2o (mín) - Afhending færeyska jólatrésins. - Menning og list í Skepnufirði
- þáttur 12.16 (min) - Á Sankti-Bernhardssjúkrahúsinu. - Öldrunardeildin. - Fyrri heimsóknartími. - Seinni heimsóknartími.
- þáttur 9.42 (mín) - Húð og hitt. - Misminni. - Lyfjagjöf. - Á kynfræðsludeild. - Alþingismaður hjá sálfræðing.
Eftir hlé
breyta- þáttur 8.10 (mín) - Túrhilla á kjörstað. - Frambjóðandi hringir í atkvæði. - Barnakennari á kjörstað.
- þáttur 11.45 (mín) - Eldhúsmellur. - Í leikhúsinu.
- þáttur 9.24 (mín) - Amerískir túrhestar. - Þulur hjá sálfræðing. - Talsamband við útlönd.
Textabrot af bakhlið plötuumslags
breytaEfni þessarar hljómplötu er úr skemmtiþáttum útvarpsins Úllen dúllen doff og er valið og sett saman á nýjan leik af höfundunum undir stjórn Gísla Rúnars Jónssonar - Þættirnir sem valið er úr voru á dagskrá útvarpsins veturinn 1978-79 og 1979-80. | ||