Söngvakeppnin 2015
Söngvakeppnin 2015 er söngvakeppni haldin á vegum RÚV í því skyni að velja framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2015. Keppnin samanstóð af tveimur undanúrslitum sem fóru fram 31. janúar og 7. febrúar 2015 og úrslitum sem fóru fram 14. febrúar 2015. Keppnin fór fram í Háskólabíó. Kynnar voru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Guðrún Dís Emilsdóttir og Salka Sól Eyfeld.
Söngvakeppnin 2015 | |
---|---|
Dagsetningar | |
Undanúrslit 1 | 31. janúar 2015 |
Undanúrslit 2 | 7. febrúar 2015 |
Úrslit | 14. febrúar 2015 |
Umsjón | |
Vettvangur | Háskólabíó |
Kynnar | |
Sjónvarpsstöð | RÚV |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 12 |
Kosning | |
Sigurvegari | María Ólafsdóttir |
Sigurlag | „Unbroken“ |
María Ólafsdóttir sigraði keppnina með laginu „Unbroken“ og tók þátt fyrir hönd Íslands í Eurovision þar sem hún endaði í 15. sæti í seinni undanriðlinum með 14 stig.[1]
Tenglar
breytaTilvísanir
breyta- ↑ „Ísland fékk 14 stig“. www.mbl.is. 23. maí 2015. Sótt 25. febrúar 2024.
Þessi tónlistargrein sem tengist sjónvarpi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.