Padanía
Padanía (ítalska: [paˈdaːnja]) er nafn á landssvæði og fyrirhuguðu sjálfstæðu ríki sem ætlað er að ná yfir Norður-Ítalíu. Nafnið er dregið af Pó-fljótinu (latneskt Padus), sem vatnasvæðið nær yfir stóran hluta svæðisins, með miðju í Pó-dalnum (Pianura Padana), helstu sléttu Norður-Ítalíu.[1]
Til Padaníu teljast 11 héruð Norður- og Mið-Ítalíu: Langbarðaland; Venetó; Emilía-Rómanja; Fjallaland; Lígúría; Friúlí; Trentínó-Suður-Týról; Ágústudalur; Toskana; Marke; og Úmbría.
Hugtakið var búið til á sjöunda áratug síðustu aldar sem landfræðilegt hugtak, og varð þekkt á tíunda áratugnum þegar ítalski stjórnmálaflokkurinn Norðurbandalagið (Lega Nord) talaði fyrir aðskilnaði og sjálfstæði norðurhéraða Ítalíu, sem sjálfstæðri Padaníu. Það hefur síðan verið sterklega tengt við þjóðernishyggju kennda við Padaníu.
Padanía eins og það er skilgreint í yfirlýsingu Lega Nord um sjálfstæði og fullveldi Padaníu frá 1996 nær út fyrir Norður-Ítalíu og nær yfir stóran hluta Mið-Ítalíu.