Fríúlí
Fríúlí (ítalska: Regione autonoma Friuli-Venezia Giulia; fríúlíska: Friûl-Vignesie Julie; króatíska og slóvenska: Furlanija - Julijska krajina; þýska: Friaul-Julisch Venetien) er sjálfstjórnarhérað á Norðaustur-Ítalíu sem markast af Venetó í vestri og landamærum Austurríkis og Slóveníu í norðri og austri með strönd að Adríahafi í suðri. Höfuðstaður héraðsins er borgin Tríeste. Íbúafjöldi er um 1,2 milljónir.[1] Langstærsti hluti héraðsins er hið sögulega hérað Fríúlí með höfuðstað í Údíne, en það inniheldur að auki Venezia Giulia á landamærunum við Slóveníu og Austurríki með höfuðstað í Tríeste. Þessu síðastnefnda svæði var bætt við eftir Síðari heimsstyrjöldina þegar Júgóslavía hafði fengið stærstan hlutann af því sem áður taldist héraðið umhverfis Tríeste. Í héraðinu eru stórir þýskumælandi og slóvenskumælandi hópar. Vegna menningarlegrar sérstöðu hefur héraðið takmarkaða sjálfstjórn.
Fríúlí
| |
---|---|
Hnit: 46°6′N 13°7′A / 46.100°N 13.117°A | |
Land | Ítalía |
Höfuðborg | Tríeste |
Flatarmál | |
• Samtals | 7.937 km2 |
Mannfjöldi (2024)[1] | |
• Samtals | 1.195.792 |
• Þéttleiki | 150/km2 |
Tímabelti | UTC+01:00 (CET) |
• Sumartími | UTC+02:00 (CEST) |
ISO 3166 kóði | IT-36 |
Vefsíða | www |
Sýslur (province)
breytaTilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 „Regione Autonoma Friuli Venezia Giulia“. tuttitalia.it (ítalska). Sótt 27. nóvember 2024.