Jáeindaskanni
(Endurbeint frá PET-skanni)
Jáeindaskanni (einnig nefnt jásjá[1] eða PET af enska heitinu positron emission tomography) er sneiðmyndatæki sem notað er til að nema efnaskiptahraða, efnaupptöku og blóðflæði á mismunandi svæðum líkamans. Það er gert með því að setja geislavirkt efni inn í líkamann og nema jáeindir sem efnið gefur frá sér.
Til að nema krabbamein er geislavirkri samsætu af flúori komið fyrir í glúkósasameind. Efnaskipti eru hröð í krabbameinsvef, hann tekur því til sín meira af geislavirka glúkósanum en annar vefur og það getur jáeindaskanninn numið.
Jáeindaskannar eru talsvert dýrari en aðrir nemar. Fyrsti jáeindaskanninn var tekinn í notkun á Íslandi árið 2018, og var það Íslensk erfðagreining sem fjármagnaði kaupin með 720 milljón króna styrk.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Hvað gerist í jáeindaskanna?“. Vísindavefurinn. Sótt 3. febrúar 2021.
- ↑ „Hefðum átt að setja upp jáeindaskanna sjálf“. RÚV. 23. september 2018. Sótt 3. febrúar 2021.
Tengill
breyta Þessi tæknigrein sem tengist líffræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.