Snælenja
Snælenja (Nothofagus antarctica) er lauftré frá suðurodda Suður-Ameríku af ættkvíslinni Nothofagaceae. Telst það vera suðlægasta tré í heimi.
Snælenja | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
N. antarctica í Torres del Paine þjóðgarðinum, Síle.
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Nothofagus antarctica (Forster) Oerst. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Nothofagus uliginosa (A.DC.) Krasser |
Lýsing
breytaSnælenja þekur hlíðar hátt í fjöll upp í Chile og Argentínu og vex í dölum Eldlandsins. Það er lítið, sumargrænt tré með flæktar greinar eða runni allt að 17 m hár í heimkynnum sínum. Krónan er óregluleg. Lauf haldast græn á trénu langt eftir hausti. Skyld tegund er hvítlenja (Nothofagus pumilio).
Á Íslandi
breytaSnælenja virðist dafna við sömu skilyrði og birki, en þarf þó betra skjól og meiri framræslu. Vex oftast sem runni og er til í trjásöfnum og einstökum görðum.[1]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. ágúst 2020. Sótt 10. ágúst 2015.