Margrét Þórhildur

Drottning Danmerkur
(Endurbeint frá Margrét II)

Margrét Þórhildur eða Margrét 2. (Margrethe Alexandrine Þórhildur Ingrid) (fædd 16. apríl 1940) er fyrrverandi drottning og þjóðhöfðingi konungdæmisins Danmerkur. Hún er dóttir Friðriks 9. konungs (1899-1972) sem var krónprins þegar hún fæddist og Ingiríðar drottningar (1910-2000).

Skjaldarmerki Lukkuborgarar Drottning Danmerkur
Lukkuborgarar
Margrét Þórhildur
Margrét 2.
Ríkisár 14. janúar 1972 – 14. janúar 2024
SkírnarnafnMargrethe Alexandrine Þórhildur Ingrid
Ættarnafn: Glücksburg
KjörorðGuds hjælp, folkets kærlighed, Danmarks styrke.
Fædd16. apríl 1940 (1940-04-16) (84 ára)
 Amalíuborgarhöll í Kaupmannahöfn
Konungsfjölskyldan
Faðir Friðrik 9. Danakonungur
Móðir Ingiríður Danadrottning
EiginmaðurHenri Marie Jean André
greifi af Laborde og Monpezat
Börn

Eitt nafna hennar, Þórhildur, er íslenskt og er skrifað með bókstöfum sem ekki koma fyrir í danska stafrófinu. Ástæða þess, að hún hlaut íslenskt nafn í stað danskrar útgáfu nafnsins (Torhild) er að Kristján 10., afi hennar, var konungur konungsríkisins Íslands þegar hún fæddist.

Margrét Þórhildur var gift Hinrik (Henri Marie Jean André greifi af Laborde og Monpezat) (fæddur 11. júní 1934, dáinn 13. febrúar 2018) og eignuðust þau tvo syni: Friðrik krónprins og Jóakim.

Drottningin hefur fengist við ýmsa listsköpun og haldið sýningar á verkum sínum.

Á gamlársdag árið 2023 tilkynnti Margrét Þórhildur að hún hygðist segja af sér.[1] Hún steig formlega til hliðar þann 14. janúar 2024 og elsti sonur hennar varð konungur undir nafninu Friðrik 10..[2]

Heimildir

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. Alexander Kristjánsson; Ástrós Signýjardóttir (31. desember 2023). „Margrét Þórhildur afsalar sér krúnunni“. RÚV. Sótt 1. janúar 2024.
  2. Birta Björnsdóttir (14. janúar 2024). „Nýr konungur í Danmörku“. RÚV. Sótt 14. janúar 2024.


Fyrirrennari:
Friðrik 9.
Danadrottning
(19722024)
Eftirmaður:
Friðrik 10.


   Þetta æviágrip sem tengist sögu og Danmörku er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.