Margrét Þórhildur
Margrét Þórhildur eða Margrét 2. (Margrethe Alexandrine Þórhildur Ingrid) (fædd 16. apríl 1940) er fyrrverandi drottning og þjóðhöfðingi konungdæmisins Danmerkur. Hún er dóttir Friðriks 9. konungs (1899-1972) sem var krónprins þegar hún fæddist og Ingiríðar drottningar (1910-2000).
| ||||
Margrét 2.
| ||||
Ríkisár | 14. janúar 1972 – 14. janúar 2024 | |||
Skírnarnafn | Margrethe Alexandrine Þórhildur Ingrid Ættarnafn: Glücksburg | |||
Kjörorð | Guds hjælp, folkets kærlighed, Danmarks styrke. | |||
Fædd | 16. apríl 1940 | |||
Amalíuborgarhöll í Kaupmannahöfn | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Friðrik 9. Danakonungur | |||
Móðir | Ingiríður Danadrottning | |||
Eiginmaður | Henri Marie Jean André greifi af Laborde og Monpezat | |||
Börn |
|
Eitt nafna hennar, Þórhildur, er íslenskt og er skrifað með bókstöfum sem ekki koma fyrir í danska stafrófinu. Ástæða þess, að hún hlaut íslenskt nafn í stað danskrar útgáfu nafnsins (Torhild) er að Kristján 10., afi hennar, var konungur konungsríkisins Íslands þegar hún fæddist.
Margrét Þórhildur var gift Hinrik (Henri Marie Jean André greifi af Laborde og Monpezat) (fæddur 11. júní 1934, dáinn 13. febrúar 2018) og eignuðust þau tvo syni: Friðrik krónprins og Jóakim.
Drottningin hefur fengist við ýmsa listsköpun og haldið sýningar á verkum sínum.
Á gamlársdag árið 2023 tilkynnti Margrét Þórhildur að hún hygðist segja af sér.[1] Hún steig formlega til hliðar þann 14. janúar 2024 og elsti sonur hennar varð konungur undir nafninu Friðrik 10..[2]
Heimildir
breyta- Hendes Majestæt Dronningen @ Kongehuset Geymt 19 október 2012 í Wayback Machine. Skoðað 17. október 2010.
Tilvísanir
breyta- ↑ Alexander Kristjánsson; Ástrós Signýjardóttir (31. desember 2023). „Margrét Þórhildur afsalar sér krúnunni“. RÚV. Sótt 1. janúar 2024.
- ↑ Birta Björnsdóttir (14. janúar 2024). „Nýr konungur í Danmörku“. RÚV. Sótt 14. janúar 2024.
Fyrirrennari: Friðrik 9. |
|
Eftirmaður: Friðrik 10. |