Mandrill (fræðiheiti: Mandrillus sphinx) er prímati af ætt stökkapa. Tegundin flokkast nú undir ættkvíslina Mandrillus ásamt vestur-afríska bavíananum en taldist áður til bavíana. Mandrillinn er stærsti apaköttur í heimi en hann verður allt að 1 m á lengd, karldýrin verða um 30 kg og kvendýrin um 15 kg.

Mandrill
Mandrill
Mandrill
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Animalia
Fylking: Chordata
Flokkur: Mammalia
Ættbálkur: Primates
Ætt: Cercopithecidae
Ættkvísl: Mandrillus
Tegund:
M, sphinx

Tvínefni
Mandrillus sphinx
Linnaeus (1758)
Mandrill höfuðkúpa

Mandrílar eru félagsdýr sem finnast í hópum sem í eru frá 5 og upp í 50 dýr undir forustu eldra karldýrs.

Mandrílar eru alætur sem nærast aðallega á plöntum, skordýrum og smádýrum, þeir eru jarðbundnir þótt þeir klifri stöku sinnum upp í tré til að sofa þar. Helstu óvinir mandríla eru hlébarðar og blettatígrar.

Heimkynni

breyta

Heimkynni mandrilla eru í regnskógum Vestur-Afríku við miðbaug (Suður-Kamerún, Gabon og Lýðveldinu Kongó).