Luka Modrić
Luka Modrić (fæddur 9. september 1985) er króatískur knattspyrnumaður sem spilar með Real Madrid og króatíska landsliðinu. Hann þykir einn besti miðherji í heimi og hefur unnið verðlaun fyrir þá stöðu í La Liga og hjá UEFA.
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Luka Modrić | |
Fæðingardagur | 9. september 1985 | |
Fæðingarstaður | Zadar, Króatía | |
Hæð | 1,72 m | |
Leikstaða | Miðjumaður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Real Madrid | |
Númer | 10 | |
Yngriflokkaferill | ||
1996-2001 2002-2003 |
NK Zadar Dinamo Zagreb | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2003-2008 | Dinamo Zagreb | 94 (26) |
2003-2004 | →HŠK Zrinjski Mostar (lán) | 22 (8) |
2004-2005 | →NK Inter Zaprešić (lán) | 18 (4) |
2008-2012 | Tottenham Hotspur | 127 (13) |
2012- | Real Madrid | 317 (26) |
Landsliðsferill | ||
2006- | Króatía | 162 (23) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Modric fæddist í borginni Zadar við Adríahafsströnd Króatíu. Æska hans var lituð af Júgóslavíustríðinu og fjölskylda hans bjó á hótelum í nokkur ár.
Eftir að hafa vakið athygli með heimaliði borgarinnar hélt hann til Dinamo Zagreb árið 2002. Árið 2005 hóf hann að spila með aðalliðinu. Modric vann þrjá deildartitla og bikartitla með félaginu.
Árið 2008 hélt hann til Tottenham Hotspur og árið 2012 til Real Madrid. Hann hefur unnið spænsku deildina fjórum sinnum og Meistaradeild Evrópu sex sinnum með Real.
Modric var valinn besti leikmaðurinn á HM 2018 í Rússlandi þegar hann leiddi Króata til silfurverðlauna. FIFA valdi hann einnig sem leikmann ársins. [1] Einnig hlaut hann gullknöttinn sama ár.
Modric hefur spilað meira en 1000 leiki í öllum keppnum.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Luka Modrić“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 11. júlí 2018.
Tilvísanir
breyta- ↑ Luka Modric named best male player and Marta best female player at Fifa awardsBBC, skoðað 24. september 2018.