Liverpool F.C. (Montevídeó)
Liverpool Fútbol Club er úrúgvæskt knattspyrnulið frá Montevídeó, stofnað þann 15. febrúar árið 1915. Það hefur lengst af verið í efstu deild úrúgvæsku knattspyrnunnar en varð meistari í fyrsta sinn árið 2023.
Liverpool Fútbol Club | |||
Fullt nafn | Liverpool Fútbol Club | ||
Gælunafn/nöfn | Negriazules, Los negros de la cuchilla | ||
---|---|---|---|
Stofnað | 15. febrúar 1915 | ||
Leikvöllur | Estadio Belvedere,, Montevídeó | ||
Stærð | 10.000 | ||
Stjórnarformaður | José Luis Palma | ||
Knattspyrnustjóri | Emiliano Alfaro | ||
Deild | Úrúgvæska úrvalsdeildin | ||
2023 | Meistarar | ||
|
Sagan
breytaRekja má uppruna félagsins til ársins 1908 þegar nemendur í kaþólska skólanum í Nuevo París í Montevídeó tóku að æfa knattspyrnu. Nokkrum árum síðar var formlegu félagi komið á laggirnar og var það kennt við ensku hafnarborgina Liverpool enda um talsverð menningarleg tengsl að ræða og meirihluti þeirra kolaflutningaskipa sem sigldu til Montevídeó lögðu af stað frá Liverpool.
Liverpool hefur tvívegis keppt í Copa Libertadores, árin 2011 og 2021, en í bæði skiptinn fallið úr leik í fyrstu umferð.
Árið 2023 varð Liverpool í fyrsta sinn úrúgvæskur meistari en auk meistaratitilsins hlaut félagið þrjá af fjórum minni titlum sem í boði voru.
Titlar
breytaÚrúgvæskur meistari (1): 2023