Litlu-Antillaeyjar
Litlu-Antillaeyjar eru eyjaklasi í Antillaeyjaklasanum sem, ásamt Bahamaeyjum, mynda Vestur-Indíur. Litlu-Antillaeyjar eru löng röð lítilla eyja sem liggur frá norðri til suðurs og myndar austurmörk Karíbahafsins við Atlantshaf.
Litlu-Antillaeyjum er stundum skipt í Kulborðseyjar (suður) og Hléborðseyjar (norður) þar sem ríkjandi staðvindar blása frá suðri til norðurs.
Eyjarnar eru (frá norðri til suðurs):
- Bandarísku Jómfrúreyjar
- Bresku Jómfrúreyjar
- Angvilla (Bretland)
- Sankti Kristófer og Nevis
- Antígva og Barbúda
- Montserrat (Bretland)
- Guadeloupe (Frakkland)
- Dóminíka
- Martinique (Frakkland)
- Sankti Lúsía
- Barbados
- Sankti Vinsent og Grenadíneyjar
- Grenada
- Trínidad og Tóbagó
- Eyjarnar undan strönd Venesúela
- Hollensku Antillaeyjar (Holland)
- Norðausturhorn Karíbahafsins
- Sint Eustatius
- Saba
- Saint Martin (ásamt Frakklandi)
- Undan strönd Venesúela
- Norðausturhorn Karíbahafsins
- Arúba (Holland)