Karólína Guðmundsdóttir
Karólína Guðmundsdóttir (29. apríl 1897 – 31. ágúst 1981) var vefnaðarkona í Reykjavík. Hún var ættuð frá Þóroddsstöðum í Grímsnesi. Karólína var árin 1920-23 í námi í Dansk kunstlivsforening og lærði vefnað á vinnustofu frk. Siegumfeldt í Kaupmannahöfn en kom heim árið 1923 og byrjaði að vefa. Hún rak Vefnaðarstofu Karólínu Guðmundsdóttur frá 1938 til 1972-1973 en þá tók Elín Björnsdóttir frænka hennar við rekstrinum. Vefnaðarstofan var á Ásvallagötu 10a. Karólína óf úr íslenskri ull, úr Gefjunargarni. Hún óf gluggatjöld og áklæði og fleira fyrir ýmsar opinberar byggingar. Þegar mest umsvif voru unnu sjö stúlkur hjá henni við vefnað. Karólína seldi einnig ýmis konar efni til handavinnu og fékk listamenn til að teikna mynstur á veggteppi og útsaumsstriga.
Heimildir
breyta- Karólína Guðmundsdóttir(80 ára afmæli) Morgunblaðið, 95. tölublað (29.04.1977)
- Guðmundur Einarsson (minningargrein)
- Heimsókn í vefstofu Karólínu Guðmundsdóttur, Samvinnan, 6. Tölublað (01.06.1956) Blaðsíða 9
- Stólar í Búnaðarbankanum með áklæði ofnu af Karólínu Byggingarlistin, 1. tölublað (01.01.1951), Blaðsíða 16
- Lesbók Morgunblaðsins, 8. tölublað (24.02.1974), Blaðsíða 6
- Karólína vefari (sýning) Geymt 17 ágúst 2021 í Wayback Machine