Helgi Hallvarðsson

skipherra hjá Landhelgisgæslunni

Helgi Hallvarðsson (fæddur 12. júní 1931 í Reykjavík, látinn 15. mars 2008 í Reykjavík) var skipherra hjá Landhelgisgæslunni.

Helgi lauk far­manna­prófi frá Stýri­manna­skól­an­um í Reykja­vík árið 1954 og varðskipa­prófi frá varðskipa­deild skól­ans árið 1962. Þá lauk hann flug­um­ferðar­stjóra­prófi frá Flug­mála­stjórn árið 1956, auk ým­issa nám­skeiða, m.a. hjá banda­rísku strand­gæsl­unni, danska sjó­hern­um og öðrum, tengd­um starf­semi Land­helg­is­gæsl­unn­ar.[1]

Helgi starfaði lengst af hjá Land­helg­is­gæsl­unni. Hann var stýri­maður á öll­um varðskip­um og flug­vél­um henn­ar árin 1954 til 1963 og skip­herra á öll­um varðskip­um, flug­vél­um og í stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unn­ar frá 1964 til 1990. Helgi var oft í fremstu víg­línu þegar land­helg­in var færð út í 12, 50 og síðar 200 míl­ur og Íslend­ing­ar háðu sín þorska­stríð.[2] Hann var vel þekktur meðal Breta og annara þáttakenda í Þorskastíðunum og var gefin ýmis viðurnefni eins og „Mad Helgi“, „The Maddest Axeman“, og „Napoleon of the North“. [3] [4] [5]

Hann hlaut riddaratign orðu Heilags Olavs árið 1974 og riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1976 fyrir þátt sinn í Þorskastríðunum.[6]

Heiðursmerki

breyta

Íslensk Heiðursmerki

breyta

Erlend Heiðursmerki

breyta

Heimildir

breyta
  1. „Andlát: Helgi Hallvarðsson“.
  2. „Andlát: Helgi Hallvarðsson“.
  3. „Gunboat Thor crashes into frigate“. Aberdeen Evening Express. 9. janúar 1976. bls. 1, 9. Sótt 24. júlí 2022 – gegnum British Newspaper Archive.
  4. Guðmundur G. Þórarinsson (23. nóvember 1992). „The Maddest Axeman“. Dagblaðið Vísir. bls. 17. Sótt 24. júlí 2022 – gegnum Tímarit.is.  
  5. Gordon Hughes (12. janúar 1976). „My Napoleon of the North“. Daily Mirror. bls. 5. Sótt 24. júlí 2022 – gegnum British Newspaper Archive.
  6. „Andlát: Helgi Hallvarðsson“.
   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.