Leikari
(Endurbeint frá Leikkona)
Leikari eða leikkona er starfsheiti og haft um þann sem fer með hlutverk persónu á sviði, í kvikmynd eða sjónvarpi og notar til þess texta sem leikskáld (eða handritshöfundur) hefur samið.
Tegundir leikara
breytaTil eru eftirfarandi tegundir leikara:
- aðalleikari: sá sem leikur aðalhlutverkið.
- aukaleikari: sá sem leikur aukapersónu, persónu sem ekki er í aðalhlutverki.
- áhættuleikari: sérþjálfaður maður sem leikur í áhættuatriðum fyrir leikara.
- dansleikari: ballet-dansari, oft einnig haft um þann sem aðeins dansar í söngleikjum.
- eftirherma: sá sem hermir eftir.
- farandleikari: leikari sem flakkar um með leikhópi.
- gamanleikari: sá sem leikur í gamanleik, einnig nefndur háðleikari.
- harmleikari: sá sem leikur í harmleik.
- látbragðsleikari (svipbrigðaleikari): sá sem ekki notar orð, heldur líkamann til að tjá persónu eða aðstæður (mimic).
- leikhússkórmey: stúlka í kór, kemur oft fyrir í söngleikjum(chorus girl).
- statisti: sá sem leikur ónafngreinda persónu í hópatriðum.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Leikari.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Leikari.