Handknattleiksárið 1942-43
Handknattleiksárið 1942-43 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1942 og lauk sumarið 1943. Haukar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Ármenningar í kvennaflokki. Engir landsleikir fóru fram á tímabilinu.
Karlaflokkur
breyta1. deild
breytaHaukar urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn eftir úrslitaleik gegn Valsmönnum. Níu lið tóku þátt í mótinu. Keppt var í tveimur riðlum og léku sigurliðin til úrslita.
A riðill
Félag | Stig |
---|---|
Haukar | 8 |
Víkingur | 6 |
KR | 4 |
Fram | 2 |
Íþróttafélag Háskólans | 0 |
B-riðill
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 6 |
Ármann | 4 |
ÍR | 2 |
FH | 0 |
Úrslitaleikur
- Valur - Haukar 16:22
Kvennaflokkur
breyta1. deild
breytaÁrmannsstúlkur urðu Íslandsmeistarar í kvennaflokki fjórða árið í röð. Í úrslitum sigruðu þær Hauka 11:9 eftir framlengda viðureign. Ármenningar urðu einnig Íslandsmeistarar utanhúss.