Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson

Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson (f. 11. febrúar 1972) er íslenskur sálfræðingur og leikari sem hefur leikið í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum á Íslandi.

Hafsteinn Hafsteinsson
FæddurHafsteinn Gunnar Hafsteinsson
11. febrúar 1972 (1972-02-11) (52 ára)
Ár virkur2003 –

Hann kláraði grunnmenntun í Reykjavík en fór svo til Bandaríkjanna í skiptinám árið 1989 við Franklin D. Roosevelt-menntaskólann. Hann er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í átakastjórnun frá Háskólanum í Denver.[1] Hann hefur veitt ráðgjöf við sáttamiðlun í réttarkerfinu á Íslandi. Hann lærði leiklist við Kvikmyndaskóla Íslands.

Fyrsta hlutverk hans sem aðalpersóna var „Karl“ í stuttmynd Braga Þórs Hinrikssonar The Last Generation: The Ten Commandments .[2] Hann hefur síðan þá leikið í meðal annars Borgríki 2 og Ófærð.

Kvikmyndir og sjónvarpsþættir

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. „Háskóli Denver Website, CRI Alumni Kastljós - Hafsteinn Hafsteinsson '10“. Sótt 11. nóvember 2014.
  2. „The Last Generation: The Ten Commandments á IMDB“. Sótt 11. nóvember 2014.

Tenglar

breyta
   Þetta æviágrip sem tengist leikurum og Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.