Gwen Stefani
Gwen Renée Stefani (f. 3. október 1969) er bandarísk söngkona og tískuhönnuður. Stefani var aðalsöngkona rokkbandsins No Doubt. Eftir að hafa skipt úr punk-rokki yfir í nútímalegri tónlist, færði þriðja breiðskífan þeirra, Tragic Kingdom (1995), þeim frægð og frama og seldist hún í yfir 16 milljónum eintaka um allan heim. Platan gaf af sér þrjár smáskífur, „Just a Girl“, „Spider Webs“ og „Don't Speak“. Hljómsveitin hélt áfram að vera vinsæl þegar það gaf út fjórðu breiðskífuna, Return of Saturn (2000) og Rock Steady (2001) sem einblíndu á danstónlist og fékk jákvæða dóma.
Gwen Stefani | |
---|---|
Fædd | Gwen Renée Stefani 3. október 1969 |
Önnur nöfn | |
Störf |
|
Ár virk | 1986–í dag |
Maki |
|
Börn | 3 |
Tónlistarferill | |
Stefnur | |
Hljóðfæri | Rödd |
Útgefandi | |
Áður meðlimur í | No Doubt |
Vefsíða | gwenstefani |
Undirskrift | |
Gwen tók upp fyrstu sólóplötuna sína, Love. Angel. Music. Baby., árið 2004. Platan sótti innblástur í lög frá 9. áratugnum og seldist hún í yfir sjö milljónum eintaka um allan heim. Þriðja smáskífa plötunnar, „Hollaback Girl“ var fyrsta lagið sem seldist í milljón eintökum í gegnum niðurhal. Önnur sólóplata Gwen, The Sweet Escape (2006) náði einnig miklum vinsældum. Að meðtaldri þáttöku sinni í No Doubt hefur Stefni selt yfir 40 milljón platna um heim allan.
Útgefið efni
breytaBreiðskífur
breyta- Love. Angel. Music. Baby. (2004)
- The Sweet Escape (2006)
- This Is What the Truth Feels Like (2016)
- You Make It Feel Like Christmas (2017)
Með No Doubt
breyta- No Doubt (1992)
- The Beacon Street Collection (1995)
- Tragic Kingdom (1995)
- Return of Saturn (2000)
- Rock Steady (2001)
- Push and Shove (2012)
Tilvísanir
breyta- ↑ „Gwen Stefani Files Documents for Name Change After Divorcing Gavin Rossdale“. 6. júlí 2016.
- ↑ Tannenbaum, Emily (17. júlí 2021). „Gwen Stefani Says It's 'Gwen Shelton Now' After Blake Shelton Calls Her by Her Maiden Name“.
- ↑ „Gwen Stefani Climbs Back From the Abyss“. The New York Times. 13. mars 2016. Afrit af uppruna á 24. júlí 2018. Sótt 23. júlí 2018.
- ↑ Jeffries, David. „Gwen Stefani“. AllMusic. Afrit af uppruna á 1. júlí 2018. Sótt 23. júlí 2018.
- ↑ „No Doubt | New Music And Songs“. MTV. Afrit af upprunalegu geymt þann 12. maí 2012. Sótt 11. apríl 2014.
- ↑ „Polydor Records Artists“. Sótt 16. september 2023.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Gwen Stefani“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt september 2009.