Ármann Snævarr
Gunnsteinn Ármann Snævarr (18. september 1919 – 15. febrúar 2010) var íslenskur lagaprófessor og hæstaréttardómari. Hann var rektor Háskóla Íslands frá 1960 til 1969 og dómari við Hæstarétt Íslands frá 1972 til 1984.[1]
Ármann kvæntist uppeldisfræðingnum og skólastjóranum Valborgu Sigurðardóttur árið 1950 og átti með henni fimm börn.
Æviágrip
breytaÁrmann fæddist hjónunum Valdemar Valvessyni Snævarr og Stefaníu Erlendsdóttur í Neskaupstað á Norðfirði árið 1919 og ólst þar upp. Hann hóf nám í Menntaskólanum á Akureyri árið 1933 og útskrifaðist þaðan árið 1938 með góðum árangri. Hann lauk síðan embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1944.[2][3]
Eftir embættisprófið árið 1944 vann Ármann í nokkra mánuði sem bæjarfógeti á Akranesi en fór síðan í framhaldsnám erlendis. Hann nam fyrst lög í Uppsalaháskóla í Svíþjóð árin 1945-1946, við Kaupmannahafnarháskóla 1946-1947 og Óslóarháskóla 1947-1948. Árið 1952 hlaut Ármann réttindi héraðsdómslögmanns en hann starfaði þó aldrei sem lögmaður. Ármann var við sérnám í Harvard-lagaháskólanum árin 1954 til 1955.[2]
Heimildir
breyta- ↑ „Ármann Snævarr látinn“. mbl.is. 15. febrúar 2010. Sótt 6. mars 2019.
- ↑ 2,0 2,1 Páll Sigurðsson (1. janúar 2018). „Ármann Snævarr“. Andvari. bls. 9-50.
- ↑ „Ármann Snævarr“. mbl.is. 26. febrúar 2010. Sótt 6. mars 2019.