Guiyang Longdongbao-alþjóðaflugvöllurinn

alþjóðaflugvöllur í Kína

Alþjóðaflugvöllur Guiyang Longdongbao (IATA: KWE, ICAO: ZUGY) (kínverska: 贵阳龙洞堡国际机场; rómönskun: Guìyáng Lóngdòngbǎo Guójì Jīchǎng) er flughöfn Guiyang, höfuðborgar Guizhou héraðsins í Alþýðulýðveldinu Kína. Hann þjónar sem mikilvæg samgöngumiðstöð fyrir Guiyang og Guizhou hérað. Hann er einn af umferðameiri flugvöllum Kína.

Mynd er sýnir aðkomu að Guiyang Longdongbao alþjóðaflugvellinum við Guiyang borg, í Guizhou héraði í Kína.
Guiyang Longdongbao flugvöllurinn í Guiyang borg, Kína.
Mynd er sýnir farþegastöð Guiyang Longdongbao alþjóðaflugvallarins við Guiyang borg, í Guizhou héraði, Kína.
Farþegastöð Guiyang Longdongbao flugvallarins.

Flugvöllurinn er staðsettur um 11 kílómetra suðaustur af miðborg Guiyang, í bænum Longdongbao, sem gefur honum nafn. Guiyang Longdongbao flugvöllur var opnaður árið 1997 en fékk viðskeytið alþjóðaflugvöllur árið 2006. Svæðið er um 4 ferkílómetrar og er með 3200 metra langa flugbraut. Flugstöðin er um 34.000 fermetrar með þremur farþegamiðstöðvum. Árið 2019 fóru um flugvöllinn um 22 milljónir farþega og 120 þúsund tonn af farmi.

Saga stækkunar

breyta

Líkt og með marga aðra flugvelli í Kína hefur vöxtur hans verið mjög mikill. Hann hefur því ítrekað komið að þolmörkum í flutningsgetu. Farþegafjöldi vallarins fór yfir 10 milljónir árið 2013, 18 milljónir árið 2017, 20 milljónir árið 2018 og um 22 milljónir árið 2019, sem gerir hann að einum stærsta flugvelli landsins.

Stækkun hófst árið 2010 með það að markmiði að geta tekið við 15.5 milljónum farþega á ári og um 220 þúsund tonnum af farmi.

Ljóst er að þörfin fyrir frekari stækkun jókst enn og því eru verulegar framkvæmdir á vellinum. Auk þriðju farþegamiðstöðvarinnar sem er í smíðum, er verið að bæta við 4000 metra langri flugbraut. Framkvæmdirnar, sem á að ljúka árið 2025, ættu að auka árlega afkastagetu flugvallarins í um 30 – 40 milljónir farþega, flutnings á 460.000 tonnum af farmi og lendingar 250.000 flugvéla.

Samgöngur við völlinn

breyta
 
Longdongbao járnbrautarstöðin tengir flugvöllinn við Guiyang borg.
 
Guiyang-Guangzhou háhraðlestinni kemur við á Longdongbao járnbrautarstöð flugvallarins.

Lestir, snarlestir og strætisvagnar tengja flughöfnina við miðborg Guiyang og nærliggjandi borgir og svæði.

Longdongbao járnbrautarstöðin er staðsett undir flugvellinum. Hún er tenging við Guiyang-Guangzhou háhraðalestina. Á stöðinni er einnig tenging snarlestakerfi Guiyang borgar.

Flugfélög

breyta
 
Flughlað Guiyang Longdongbao flugvallarins.

Flugfélögin China International Airlines, China Southern Airlines, Shandong Airlines og lággjaldafélagið Colorful Guizhou Airlines eru öll umfangsmikil á vellinum. Alls starfa 26 flugfélag á vellinum.

Flugleiðir

breyta

Flugvöllurinn býður meira en 185 flugleiðir til 97 innlendra og erlendra borga. Langflestir áfangastaðirnir eru innan Kína, en einnig eru alþjóðaflug frá París, Bangkok, Taípei, Osaka, og fleiri staða.


Tenglar

breyta

Heimildir

breyta