Guðmundur Vigfússon
Guðmundur Björgvin Vigfússon (14. september 1915 – 12. janúar 1983) var borgarfulltrúi í Reykjavík og forystumaður í verkalýðshreyfingunni
Ævi og störf
breytaGuðmundur fæddist í Hrísnesi í Barðarstrandarhreppi í Vestur-Barðastrandarsýslu. Hann flutti ungur til Reykjavíkur þar sem hann stundaði verslunarstörf og verkamannavinnu. Frá 1943-48 var hann erindreki Alþýðusambands Íslands og síðar skrifstofustjóri Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík 1948-50. Hann var blaðamaður á Þjóðviljanum 1950-52. Kjörinn í bæjarstjórn fyrir Sósíalistaflokkinn árið 1950 og sat þar fyrst fyrir þann flokk og síðar Alþýðubandalagið til ársins 1970.
Hann var meðal þeirra sem kærðir voru fyrir hlut sinn í mótmælunum við inngönguna í Nató árið 1949 en var sýknaður.
Heimild
breyta- Páll Líndal & Torfi Jónsson (1986). Reykjavík: Bæjar- og borgarfulltrúatal 1836-1986. Reykjavíkurborg.