Gigt

(Endurbeint frá Gikt)

Gigt er flokkur margra mismunandi sjúkdóma sem eiga það sameiginlegt að valda langvinnum sársauka (sem kemur oft í köstum) í liðamótum eða bandvef. Gigtarsjúkdómar eru algengir og er oft erfitt að meðhöndla þá.

Helstu flokkar gigtarsjúkdóma eru bólgusjúkdómar (liðagigt, rauðir úlfar og aðrir sjálfsofnæmissjúkdómar, fjölvöðvabólga, húðvöðvabólga, herslismein, fjölvöðvagigt, æðabólgur, hryggikt, fylgigigt, sóragigt, barnagigt), liðbólgur tengdar sýkingum, kristallasjúkdómar t.d. þvagsýrugigt, slitgigt, vöðva- og vefjagigt, og beinþynning.[1]

Tilvísanir

breyta
  1. Kristján Steinsson. „Gigt og meðferð“. Gigtarfélag Íslands. Sótt 15. janúar 2020.

Tenglar

breyta
   Þessi heilsugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.