George Harrison

Enskur tónlistarmaður og meðlimur Bítlanna (1943-2001)

George Harrison (25. febrúar 1943 – 29. nóvember 2001) var gítar- og sítarleikari, söngvari, laga- og textahöfundur, upptökustjóri og plötu- og kvikmyndaframleiðandi. Hann var einn af fjórum meðlimum Bítlanna og síðar einn af fimm meðlimum súperhljómsveitarinnar Traveling Wilburys. Hann aðhylltist Hindúisma á 7. áratug 20. aldar og mátti greina það í ýmsum verka hans síðar.

George Harrison
Mynd af George Harrison tekin árið 1974
Harrison í Hvíta húsinu árið 1974
Fæddur25. febrúar 1943(1943-02-25)
Dáinn29. nóvember 2001 (58 ára)
Störf
  • Tónlistarmaður
  • söngvari
  • lagahöfundur
  • framleiðandi
Ár virkur1958–2001
Maki
Börn1
Tónlistarferill
Stefnur
Hljóðfæri
Útgefandi
Áður meðlimur í
Vefsíðageorgeharrison.com
Undirskrift

Harrison var tvígiftur. Fyrri kona hans var fyrirsætan Pattie Boyd og voru þau gift frá 1966 til 1974. Seinni kona hans var Olivia Trinidad Arias. Þau eignuðust einn son: Dhani Harrison. Harrison var náinn vinur Erics Claptons. Hann er sá eini af Bítlunum sem gaf út sjálfsævisögu. Hún kom út 1980 og heitir Ég um mig frá mér til mín (I Me Mine).

Hann lést úr hálskrabbameini þann 29. nóvember árið 2001.

Sólóskífur

breyta
  • Wonderwall Music (1968)
  • Electronic Sound (1969)
  • All Things Must Pass (1970)
  • Living in the Material World (1973)
  • Dark Horse (1974)
  • Extra Texture (Read All About It) (1975)
  • Thirty Three & 1/3 (1976)
  • George Harrison (1979)
  • Somewhere in England (1981)
  • Gone Troppo (1982)
  • Cloud Nine (1987)
  • Brainwashed (2002)

Tenglar

breyta
   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.