G.E. Moore
George Edward Moore, venjulega þekktur sem G.E. Moore, (4. nóvember 1873 – 24. október 1958) var áhrifamikill enskur heimspekingur sem var menntaður og kenndi síðar við Cambridge-háskóla. Hann var, ásamt Bertrand Russell, Ludwig Wittgenstein og (á undan þeim) Gottlob Frege, einn af upphafsmönnum rökgreiningarheimspekinnar.
George Edward Moore | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 4. nóvember 1873 |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 19. aldar/ Heimspeki 20. aldar |
Skóli/hefð | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk | Lögmál siðfræðinnar |
Helstu kenningar | Lögmál siðfræðinnar |
Helstu viðfangsefni | siðfræði, þekkingarfræði, málspeki |
Moore er þekktastur fyrir vörn sína fyrir heilbrigðri skynsemi, fyrir siðfræði sína, og fyrir þverstæðu sem nefnd er eftir honum. Margir heimspekingar dáðust að honum og hann hafði þónokkur áhrif en er nú á dögum lítt þekktur utan fræðilegrar heimspeki. Ritgerðir Moores eru rómaðar fyrir skýrleika. Meðal frægustu rita hans eru bókin Lögmál siðfræðinnar (Principia Ethica) og ritgerðirnar „Afsönnun hughyggjunnar“ („The Refutation of Idealism“), „Til varnar heilbrigðri skynsemi“ („A Defence of Common Sense“) og „Sönnun á tilvist hins ytra heims“ („A Proof of the External World“).
G.E. Moore lést 24. október 1958. Skáldið Nicholas Moore og tónskáldið Timothy Moore voru synir hans. Moore var mikilvægur meðlimur í leynisamtökunum Cambridge-postulunum.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „George Edward Moore“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 12. maí 2006.
Frekari fróðleikur
breyta- Levy, Paul, Moore: G.E. Moore and the Cambridge Apostles (1979).