Gönguskörð
Gönguskörð eru byggðarlag og dalur í vestanverðum Skagafirði, rétt norðan og vestan við Sauðárkrók, inn á milli Molduxa að sunnan og Tindastóls að norðan.[1] Þegar komið er skammt inn í Gönguskörðin klofna þau í þrjár álmur. Sú syðsta liggur suður í Víðidal á Staðarfjöllum, sú í miðið liggur til suðvesturs og heitir þar Kálfárdalur en sú þriðja og breiðasta liggur norður með Tindastóli. Gönguskarðsá rennur um skörðin og safnar í sig mörgum smærri ám.[2]
Nokkrir bæir eru enn í Gönguskörðum en margir eru komnir í eyði. Í dalsmynninu norðanverðu, undir Tindastóli, er bærinn Skarð, sem líklega hét áður Gönguskarð. Við hann var Skarðshreppur kenndur.[3]
Skíðaland Sauðárkróksbúa er í Tindastóli og margar vinsælar gönguleiðir eru á þessu svæði.[4]
Heimildir
breyta- ↑ Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 4. september 2024.
- ↑ Hallgrímur Jónasson: Árbók Ferðafélags Íslands. Skagafjörður. Ferðafélag Íslands, 1946.
- ↑ „Sauðárkrókur“. Sauðárkrókur (bandarísk enska). 23. janúar 2012. Sótt 4. september 2024.
- ↑ Iceland, North. „Sauðárkrókur-Tindastóll Ski Area“. Visit North Iceland (enska). Sótt 4. september 2024.