Félag tónskálda og textahöfunda
(Endurbeint frá Félag tónskálda og textahöfunda á Íslandi)
Félag tónskálda og textahöfunda (skammstafað FTT) er hagsmunafélag sem gætir að rétti íslenskra tónskálda og textahöfunda. Félagið var stofnað árið 1981 sem óformlegur samráðsvettvangur, en var formlega stofnað árið 1983.[1] Félagið er eitt af tveimur aðildarfélögum að STEF. Félagar eru 450. Félagið stendur vörð um hagsmunni félaga sinna, miðlar upplýsingum til þeirra og stuðlar að aukinni spilun á íslenskri tónlist. Félagar geta einnig sótt um styrki í sjóðum.[2]
Félag tónskálda og textahöfunda | |
Rekstrarform | Félagasamtök |
---|---|
Stofnað | 1983 |
Staðsetning | Ísland |
Lykilpersónur |
|
Starfsemi | Hagsmunagæsla |
Vefsíða | ftt.is |
Í desember 2023 skoraði stjórn FTT á RÚV að Ísland myndi ekki taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2024 ef Ísrael fengi að taka þátt vegna árása Ísraelshers á óbreytta borgara í Gasa.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ Íris Hauksdóttir (23. ágúst 2023). „Tónlistarveisla í boði Félags tónskálda og textahöfunda“. visir.is. Sótt 10. mars 2024.
- ↑ „Um félagið“. FTT - félag tónskálda og textahöfunda. Sótt 10. mars 2024.
- ↑ Ragnar Jón Hrólfsson (12. desember 2023). „FTT skorar á RÚV að sniðganga Eurovision ef Ísrael verður með - RÚV.is“. RÚV. Sótt 10. mars 2024.