Elaine Fantham
Elaine Fantham (fædd Elaine Crosthwaite; 25. mai 1933 - 11. juli 2016) var breskur-kanadískur fornfræðingur. Hún var Giger prófessor í latínu við Princeton-háskóla frá 1986 til 1999. Hún var deildarforseti fornfræðideildar Princeton-háskóla frá 1989 til 1992.
Fantham er sérfróð um latneskar bókmenntir, einkum gamanleiki, söguljóð og mælskulist, rómversk trúarbrögð og félagssögu rómverskra kvenna.
Æviágrip
breytaFantham fæddist í Liverpool á Englandi.
Fantham nam fornfræði við Oxford-háskóla en hélt þaðan til Liverpool-háskóla þaðan sem hún lauk doktorsgráðu árið 1965. Doktorsritgerð hennar fjallaði um gamanleikinn Curculio eftir rómverska gamanleikjahöfundinn Plautus.
Starfsferill
breytaFantham hóf feril sinn sem menntaskólakennari á Skotlandi. Hún kenndi um skeið við Indiana-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og við háskólann í Toronto í Kanada frá 1968 til 1986. Þá hélt hún til Princeton þar sem hún kenndi til starfsloka árið 1999.
Verk
breytaBækur
breyta- Julia Augusti: the Emperor's Daughter (2006)
- Ovid's Metamorphoses (2004)
- The Roman World of Cicero's De Oratore (2004)
- Roman Literary Culture: From Cicero to Apuleius (1995)
- Women in the Classical World: Image and Text (1994) ásamt H. Foley o.fl.
- Studies in Republican Latin Imagery (1972)
Skýringarrit
breytaÞýðingar
breyta- Erasmus, The Educational and Literary Works (1989).
Tenglar
breyta- Vefsíða Elaine Fantham Geymt 28 janúar 2011 í Wayback Machine