Ed Miliband
Ed Miliband (f. 24. desember 1969) er breskur þingmaður og fyrrverandi leiðtogi Verkamannaflokksins. Flokkurinn er í andstæðustjórn eins og er. Hann hefur verið þingmaður frá árinu 2005 og var ráðherra í ríkisstjórn Gordon Brown árin 2007 til 2010. Bróðir hans David Miliband er líka þingmaður í Verkamannflokknum.
Hann fæddist í London og útskrifaðist í sálfræði, stjórnmálafræði og hagfræði við Oxford-háskóla áður en hann fór í meistaranám í hagfræði við London School of Economics. Hann varð blaðamaður og svo rannsóknarmaður í Verkamannaflokknum. Í gegnum árin kynntist hann Gordon Brown og varð formaður efnahagsráðgjafaráðs hjá breska fjármálaráðuneytinu.
Þegar Gordon Brown varð forsætisráðherra árið 2007 skipaði hann Miliband í embætti ráðherra fyrir ríkisstjórnina. Hann hlaut stöðuhækkun árið 2008 þegar hann var skipaður í nýja embættið orku- og loftlagsbreytingaráðherra. Árið 2010 hætti hann í þessu starfi og varð leiðtogi Verkamannaflokksins. Hann gegndi þeirri stöðu til ársins 2015 en þá sagði hann af sér eftir slæmt gengi í þingkosningum þess árs og við honum tók Jeremy Corbyn.[1]
Árið 2024 varð Miliband orkumálaráðherra í ríkisstjórn Keirs Starmer.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Clegg, Farage og Miliband segja af sér“. Vísir. Sótt 8. maí 2015.
- ↑ „Hver sitja í ríkisstjórn Starmers?“. mbl.is. 6. júlí 2024. Sótt 16. júlí 2024.