Þingkosningar í Bretlandi 2015
Þingkosningar í Bretlandi 2015 voru haldnir þann 7. maí þegar kosið var um 650 þingsæti í neðri deild breska þingsins. Íhaldsflokkurinn náði hreinum meirihluta, sem svarar til 331 þingsætis.[1] Skoski þjóðarflokkurinn tryggði sér stórsigur í Skotlandi, en þeir fengu 56 af 59 þingsætum þar.[2] Verkamannaflokknum gengi töluvert verr en kannanir ýjuðu að, og Frjálsyndir demókratar töpuðu næstum öllum þingsætum sínum.
Í kjölfar kosninganna sögðu leiðtogar þriggja flokka af sér: Ed Miliband (Verkamannaflokkurinn), Nick Clegg (Frjálslyndir demókratar) og Nigel Farage (Breski þjóðarflokkurinn (UKIP)).[3]
Aðdragandi
breytaÍ aðdraganda kosninganna nutu Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn mests fylgis en áhrif smærri flokka á borð við Breski þjóðarflokkurinn (UKIP), Græningjaflokkurinn og Skoski þjóðarflokkurinn jukust töluvert. Talið var að Skoski þjóðarflokkurinn væri í lykilstöðu þegar kemur að myndun ríkisstjórnar, en gert var ráð fyrir að flokkurinn sigri næstum öll sæti í Skotlandi. Leiðtogi Verkamannaflokksins Ed Miliband sagði að flokkurinn ætlaði ekki að mynda samsteypustjórn með öðrum flokkum, en Nicola Sturgeon leiðtogi Skoska þjóðarflokksins lýsti yfir vilja sínum að vinna með öðrum flokkum.[4]
Leiðtogar flokkanna tóku þátt í þremur sjónvörpuðum kappræðum í annað skiptið. Síðasta kappræðan var sýnt á BBC en þáverandi forstætisráðherra David Cameron og aðstoðarforsætisráðherra Nick Clegg tóku ekki þátt.[5]
Heimildir
breyta- ↑ „Útlit fyrir sigur Íhaldsflokksins“. Vísir. Sótt 8. maí 2015.
- ↑ „Vekur upp fjölda spurninga“. Morgunblaðið. Sótt 8. maí 2015.
- ↑ „Clegg, Farage og Miliband segja af sér“. Vísir. Sótt 8. maí 2015.
- ↑ „Sturgeon stefnir í lykilstöðu“. Vísir. Sótt 6. maí 2015.
- ↑ „Leiðtogar bresku stjórnarandstöðunnar tókust á í sjónvarpssal“. Vísir. Sótt 6. maí 2015.