Óðinn Valdimarsson syngur Einsi kaldi úr Eyjunum
(Endurbeint frá EXP-IM 69)
Óðinn Valdimarsson syngur Einsi kaldi úr Eyjunum er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1959. Á henni syngur Óðinn Valdimarsson fjögur lög með Atlantic kvartettinum, þar á meðal hið vinsæla Einsi kaldi úr Eyjunum. Kvartettinn skipuðu Finnur Eydal, saxófónn, klarinett, bongótromma, Ingimar Eydal, píanó, harmonika, Edwin Kaaber, gítar og Sveinn Óli Jónsson, trommur. Helena Eyjólfsdóttir lék á slagverk í tveimur laganna. Útsetning: Ingimar Eydal. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Ljósmynd: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló. Prentun: ÞEGG.
Óðinn Valdimarsson syngur Einsi kaldi úr Eyjunum | |
---|---|
EXP-IM 69 | |
Flytjandi | Óðinn Valdimarsson, Atlantic kvartettinn |
Gefin út | 1959 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |