Dýrahringurinn er ímynduð skipting himinhvolfsins innan stjörnuspekinnar. Almennt er miðað við 12 stjörnumerki, þannig að hver hluti hvelfingarinnar spannar 30°.

Stjörnumerki Gráður Frumefni Ríkjandi hnöttur
Hrúturinn 1°–30° Eldur Mars
Nautið 31°–60° Jörð Venus
Tvíburarnir 61°–90° Loft Merkúr
Krabbinn 91°–120° Vatn Tunglið
Ljónið 121°–150° Eldur Sólin
Meyjan 151°–180° Jörð Merkúr
Vogin 181°–210° Loft Venus
Sporðdrekinn 211°–240° Vatn Mars/Plútó
Bogmaðurinn 241°–270° Eldur Júpíter
Steingeitin 271°–300° Jörð Satúrnus
Vatnsberinn 301°–330° Loft Satúrnus/Úranus
Fiskarnir 331°–360° Vatn Neptúnus/Júpíter

Sumir vilja kalla Naðurvalda 13. stjörnumerki Dýrahringsins.

Hrútur, tarfur, tvíburar,
teljum þar til krabba og ljón,
mey og vog þá vitum þar
vorri birtist dreki sjón.
-
Bogmaður, steingeit standa næst,
stika vatnsberi og fiskar nær,
svo eru merkin sólar læst
í samhendur þessar litlar tvær.
— Úr Náttúrufræðingnum, 1937


Tenglar

breyta