Borgarbókasafn Reykjavíkur
Borgarbókasafn Reykjavíkur er almenningsbókasafn Reykvíkinga. Safnið var stofnað árið 1919 en hóf starfsemi 1923. Í safninu eru um 500.000 bækur og tímarit auk geisladiska, myndbanda og margmiðlunarefnis. Aðalsafnið er í Grófarhúsinu í Tryggvagötu en þar eru einnig til húsa Borgarskjalasafn Reykjavíkur og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Safnið rekur vefinn bókmenntir.is.
Útlánsstaðir safnsins eru sjö:
- Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagötu 15
- Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbæ 119
- Borgarbókasafnið Spönginni, Spönginni 41
- Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðubergi 3-5
- Borgarbókasafnið Kringlunni, Kringlunni við Listabraut
- Borgarbókasafnið Sólheimum, Sólheimum 27
- Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122-124
Frá 1968 til 2022 fór bókabíll (sérinnréttaður strætisvagn) um þau hverfi þar sem ekki var útlánastaður.