Bernard Bolzano
Bernard Placidus Johann Nepomuk Bolzano (5. október 1781 – 18. desember 1848) var tékkneskur stærðfræðingur, guðfræðingur, heimspekingur og rökfræðingur. Hann fæddist í Prag.
Vestræn heimspeki Nýaldarheimspeki, (Heimspeki 19. aldar) | |
---|---|
Nafn: | Bernard Placidus Johann Nepomuk Bolzano |
Fæddur: | 5. október 1781 |
Látinn: | 18. desember 1848 (67 ára) |
Helstu viðfangsefni: | Stærðfræði, rökfræði |
Frægustu setningar hans eru Bolzano-Weierstrass setningin í mengjafræði og Bolzano setningin í stærðfræðigreiningu. Einnig sannaði hann fyrstur manna setninguna um hreiðruð bil.