Benedetto Croce
Benedetto Croce (25. febrúar 1866 – 20. nóvember 1952) var ítalskur fagurfræðingur, heimspekingur og gagnrýnandi. Hugðarefni rita hans eru af ýmsu tagi, svo sem heimspeki, saga, aðferðafræði söguritunar og ekki síst fagurfræði. Hann fjallaði einnig um stjórnmál og tók þátt í þeim um hríð. Croce aðhylltist frjálslyndisstefnu en var andstæðingur óhamins viðskiptalífs. Hann hafði áhrif á menntamenn úr ýmsum áttum, jafnt marxista sem fasista.
Benedetto Croce | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. febrúar 1866 í Pescasseroli á Ítalíu |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 19. aldar, Heimspeki 20. aldar |
Skóli/hefð | Meginlandsheimspeki, hughyggja, frjálslyndisstefna |
Helstu ritverk | Breviario di estetica (Kjarni fagurfræðinnar) |
Helstu kenningar | Breviario di estetica (Kjarni fagurfræðinnar) |
Helstu viðfangsefni | fagurfræði, söguspeki, stjórnmál |
Meðal verka Croce má telja Breviario di estetica (Kjarni fagurfræðinnar), lítið rit um fagurfræði þar sem listin er sett skör hærra en vísindi og frumspeki þar sem listin er það eina sem uppfræðir manninn. Allt sem maðurinn veit má smætta niður í rökræna og skapandi þekkingu. Listin sprettur af því síðarnefnda og að hluta byggir öll hugsun á henni.