Andakílsá
á á Íslandi
Andakílsá er dragá sem fellur úr Skorradalsvatni og rennur um 12 kílómetra leið uns hún fellur í Hvítá í Borgarfirði. Í ánni eru fossar, Andakílsárfossar. Í Andakílsá er Andakílsárvirkjun en hún var byggð á árunum 1946-47. Virkjunin er í dag rekin af Orkuveitu Reykjavíkur. Virkjað afl er 8.2 megavött og ársafköst 32 gígawattstundir. Rennsli árinnar getur sveiflast allt frá 3 til 22 m3/sek.
Tengt efni
breytaHeimildir
breyta- Heimasíða Orkuveitu Reykjavíkur - skoðað 11.6.2008
- Veiðivefur NAT Geymt 29 júní 2008 í Wayback Machine - skoðað 9.6.2008
- Heimasiða Stangveiðifélags Reykjavíkur - skoðað 9.6.2008
Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.