Ammoníos Hermíasarson
Ammoníos Hermíasarson (forngríska: Ἀμμώνιος τοῦ Ἑρμίου, Ammṓnios toũ Hermíou, Ammonius Hermiae) (5. öld) var heimspekingur í síðfornöld. Hann var sonur heimspekingsins Hermíasar og vinur Prókloss. Hann kenndi í Alexandríu m.a. Jóhannesi Fílopónosi, Damaskíosi og Simplikkíosi.
Skýringarrit hans við ritverk Platons og Ptolemajosar eru glötuð. Varðveitt eru:
- Skýringarrit við Inngang Porfyríosar
- Skýringarrit við Umsagnir Aristótelesar
- Skýringarrit við Um túlkun Aristótelesar
- Skýringarrit við Almæli og fyrstu sex bækur Frumspekinnar eftir Aristóteles.
Tenglar
breyta