Allium amethystinum
Allium amethystinum er tegund af laukplöntum ættuð frá Ítalíu, Grikklandi, Tyrklandi, Sikiley, Krít, Möltu, Albaníu, Búlgaríu, og fyrrum Júgóslavía, og ræktaður annarsstaðar sem skrautplanta.[1] Þetta er ein af nokkrum tegundum lauka sem garðyrkjufræðingar kalla "drumstick onions" vegna kúlulaga blómskipunar á enda langs blómstönguls, sem líkist þá trommukjuða ("drumstick").[2][3]
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Allium amethystinum Tausch | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Allium amethystinum er með stakan lauk. Blöðin eru rörlaga og visna fyrir blómgun. Blómin eru rauð til fjólublá, með krónublöð sem varla opnast á blómgunartíma, eru vafin um egglegið og frjóþræðina svo einungis fræflarnir og frævan sjást.[4][5]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Kew World Checklist of Selected Plant Families“. Afrit af upprunalegu geymt þann 29. september 2012. Sótt 30. apríl 2018.
- ↑ Altervista, Schede di Botanica, Allium amethystinum
- ↑ Pacific Bulb Society, Milwaukie, Oregon USA. Drumstick onions
- ↑ Ignaz Friedrich Tausch. 1828. Syll. Ratlb. ii. 256.
- ↑ „Malta Wild Plants, Round-headed leek“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. apríl 2014. Sótt 30. apríl 2018.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Allium amethystinum.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Allium amethystinum.