79 af stöðinni

Kvikmynd eftir Erik Balling

79 af stöðinni er kvikmynd frá 1962 og er byggð á sögu Indriða G. Þorsteinssonar. Í myndinni er flutt lag Sigfúsar Halldórssonar, Vegir liggja til allra átta, sungið af Ellý Vilhjálms. Lagið hefur notið vinsælda alla tíð síðan myndin kom út.

79 af stöðinni
VHS hulstur
LeikstjóriErik Balling
HandritshöfundurGuðlaugur Rósinkranz
Indriði G. Þorsteinsson
FramleiðandiEdda film
Carl Rald
Leikarar
FrumsýningFáni Íslands 12. október, 1962
Lengd81 mín.
Tungumálíslenska

Myndin fjallar meðal annars um Keflavíkurflugvöllinn, og vegna þess hvernig bandaríski herinn er sýndur í myndinni voru tveir bandarískir hermenn, Lawrence W. Schneph og John D. Tacy,[1] sem léku í myndinni, yfirheyrðir. Frank J. Becker, þingmaður í New York sendi formlega kvörtun til varnamálaráðherra Bandaríkjana vegna þáttöku hermannanna í kvikmyndinni.[2][3]

Heimildir

breyta
  1. „Vegir liggja til allra átta - fornleifur.blog.is“. fornleifur.blog.is. Sótt 21. ágúst 2024.
  2. Þeir léku í kvikmyndinni.
  3. 79 af stöðinni vekur umtal
   Þessi kvikmyndagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.