Þverárfjall
(Endurbeint frá Þverárleiti)
Þverárfjall (einnig kallað Þverárleiti)[1] er fjall í Austur-Húnavatnssýslu, á milli Norðurárdals, sem liggur til norðvesturs úr Laxárdal fremri, og Laxárdals í Skagafirði. Fjallið er kennt við Þverá, innsta bæ í Norðurárdal.[2] Þverárfjallsvegur (744) var lagður yfir fjallið sumarið 2002[3] en áður var þar seinfarinn sumarvegur sem lá yfir óbrúaðar ár og læki. Með tilkomu vegarins styttist leiðin á milli Blönduóss og Sauðárkróks um 30 kílómetra.[4]
Þverárfjall | |
---|---|
Hæð | 322 metri |
Land | Ísland |
Sveitarfélag | Húnabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður |
Hnit | 65°46′36″N 20°01′47″V / 65.776786°N 20.029606°V |
breyta upplýsingum |
Þann 3. júní 2008 varð bílstjóri sem átti leið um Þverárfjall var við hvítabjörn skammt frá veginum. Björninn var felldur sama dag.[5][6]
Tilvísanir
breyta- ↑ Kristján Eiríksson; Einar Guðlaugsson (1977). „Örnefnaskrá: Þverá í Norðurádal“. bls. 7.
{{cite web}}
: Lagfæra þarf|url=
gildið (hjálp) - ↑ „Þverá í Norðurárdal - HAH“. atom.hunabyggd.is. Sótt 25. nóvember 2024.
- ↑ „Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 29. tölublað (26.08.2002) - Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 25. nóvember 2024.
- ↑ „Árbók VFÍ/TFÍ - 1. tölublað (01.06.2008) - Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 25. nóvember 2024.
- ↑ „Ísbjörn við Þverárfjall“. www.mbl.is. 3.6.2008. Sótt 28. október 2023.
- ↑ „Annar ísbjörn á Skaga - hélt að ísbjörninn væri áburðarpoki“. visir.is. 16. júní 2008. Sótt 28. október 2023.