Þverárfjall (einnig kallað Þverárleiti) er fjall í Austur-Húnavatnssýslu, á milli Norðurárdals, sem liggur til norðvesturs úr Laxárdal fremri, og Laxárdals í Skagafirði. Fjallið er kennt við Þverá, innsta bæ í Norðurárdal. Þverárfjallsvegur (744) var lagður yfir fjallið sumarið 2002 en áður var þar seinfarinn sumarvegur sem lá yfir óbrúaðar ár og læki. Með tilkomu vegarins styttist leiðin á milli Blönduóss og Sauðárkróks um 30 kílómetra.

Þverárfjall
Þverárfjallsvegur yfir Þverárleiti
Hæð322 metri
LandÍsland
SveitarfélagHúnabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður
Map
Hnit65°46′36″N 20°01′47″V / 65.776786°N 20.029606°V / 65.776786; -20.029606
breyta upplýsingum

Þann 3. júní 2008 varð bílstjóri sem átti leið um Þverárfjall var við hvítabjörn skammt frá veginum. Björninn var felldur sama dag.[1][2]

Tilvísanir

breyta
  1. „Ísbjörn við Þverárfjall“. www.mbl.is. 3.6.2008. Sótt 28. október 2023.
  2. „Annar ísbjörn á Skaga - hélt að ísbjörninn væri áburðarpoki“. visir.is. 16. júní 2008. Sótt 28. október 2023.