Í skóm drekans
(Endurbeint frá Í skóm drekans (kvikmynd))
Í skóm drekans er heimildarmynd um Hrönn Sveinsdóttur, hún ákveður að taka þátt í Ungfrú Ísland, og með hjálp vina og vandamanna tekur hún það allt upp. Margir af keppinautum hennar voru grunlausir um að hún væri að taka upp heimildarmynd, og héldu að hún væri að taka upp persónulegar upptökur. Af þessari ástæðu spruttu upp kærur vegna sýninga myndarinnar í kvikmyndahúsum, sem endaði með því að myndin varð að vera klippt. Í Áramótaskaupinu 2002 var gert mikið grín að myndinni og atburðunum sem komu í kjölfar hennar.
Í skóm drekans | |
---|---|
Leikstjóri | Hrönn & Árni Sveinsbörn |
Framleiðandi | Böðvar Bjarki Pétursson |
Leikarar | |
Frumsýning | 31. október, 2002 |
Tungumál | íslenska |
Aldurstakmark | L |
Þessi kvikmyndagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.